föstudagur, desember 29, 2006

breima læða, glys, glimmer og gloss

er komin í sollinn.....hef látið glepjast af glysi og glaumi borgarinnar og hygst dvelja hér fram á næsta ár....bið ykkur um að hugsa fallega til mín og muna alla góðu hlutina....

Fjólan er fyrirtaks gestgjafi þrátt fyrir þrálátar tilraunir hennar til að skammast í okkur saklausu sveitaprinsessunum....víst megum við rífast og slást að vilja og það er bara hollt að garga dálítið öðruhvoru....

það eina sem truflar hér er breima læða sem heldur fjörinu uppi með söng sínum

gangið hægt um gleðinnar dyr!!!

fimmtudagur, desember 28, 2006

ég nenni engu.....

1. Það er dinglað hjá þér tvö að nóttu. Hver myndur þú vilja að það væri?

Einhver af mínum yndislegu vinum...skiptir engu máli hver....ég væri örg í þessar 10 mín sem það tekur mig að vakna en eftir það væri ég gestgjafi gestgjafanna

2. Yfirmaður þinn segir að hann muni veita þér launahækkun ef ...

ég fer heim og lofa að mæta aldrei aftur...hahaha...ég vinn hjá ríkinu eru einhverjar líkur á því að mér verði boðin launahækkun sem er ekki lögbundin?????

3. Þú í hnotskurn:

ég er bara ég eins og ég er alltaf....feimin, róleg, iðjusöm og afslöppuð....hahahahahahahahahahahaha

4. Hefur þú séð draug?

Nei þá væri ég örugglega ennþá skjálfandi undir sæng......með lokuð augun svo ég sæi ekki myrkrið þar!!

5. Ánægð með líkama þinn?

Er maður nokkurn tímann ánægður með líkama sinn????? Ég er samt sátt við hann

6. Ég myndi flytja til Akureyrar ef…

Ég finndi mér skemmtilega vinnu þar

7. Staður sem þú hefur búið á og saknar:

Seyðisfjörður, Egilsstaðir(samt bara þegar mig langar að hitta Michelle), Reykjavík, Odense...held það sé það

8. Vinna sem þú myndir aldrei starfa við, sama hvað þú fengir borgað:

fiskvinnsla....leikskólakennari....svara í símann hjá 118...örugglega eitthvað meira

9. Hljómsveit sem þér fannst “cool” þegar þú varst 13.

13 ára vá ég man það nú ekki, duran duran, wham eða eitthvað álíka spennandi....var líka aðeins seinna æstur aðdáandi new kids on the block

10. Þú vaknar upp eftir slæma martröð, í hvern myndir þú hringja?

Ég er alltaf á milli svefns og vöku svo lengi eftir martraðir að ég get ekki hringt neitt....loksins þegar ég næ að vakna almennilega þá er martröðin horfin og ég sofna aftur

11. Langar þér að eignast börn fyrir þrítugt?

nei og það er sko eins gott....er víst orðið aðeins of seint

12. Sterkasta minningin þín úr framhaldsskólanum:

vá það eru nokkrar td...hleypa lofti úr öllum dekkjum á ónefndum bíl...stela lyklum af íþróttasalnum frá prestinum og fara í körfubolta um miðja nótt...hehehe...já og svo smá atriði sem ég get ekki nefnt á netinu en það tengist stærðfræði...

13. Einhvern tímann verið ástfangin af maka vinar?

nei sem betur fer...það hlýtur að vera hell

14. Mesta prakkastrik sem þú hefur gert í vinnunni?

margt kemur til greina....pakka inn skrifborði fjármálastjórans....plata barþjón til að hrista drykk með gosi...

15. Hvorum foreldra þínum líkist þú meira, móður eða föður?

móður hugsa ég

16. Eitthvað sem þú hefur alltaf viljað læra að gera:

já spila á hljóðfæri

17. Enn vinur fyrrverandi maka?

á engan slíkan samkvæmt minni skilgreiningu...ef við sleppum þessu maka orði þarna þá er svarið....nei ég er það ekki því when i move on i move on....

18. Hvar myndir þú vilja vera eftir 10 ár:

hamingjusöm og umkringd góðum vinum

19. Eitthvað sem þú lærðir um sjálfan þig á þessu ári:

já ansi margt, kannski ekki margt nýtt en þetta hefur verið gott ár

20. Hvað langar þig í afmælisgjöf?

það eru sko 10 mánuðir þangað til og ég er vog þannig að ég skipti um skoðun mjög oft en núna langar mig í safapressu og stærra eldhús já og fyrirvinnu...

21. Nefndu þrjá hluti sem þú gerðir í dag?

Pakkaði í bílinn - verslaði - pakkaði úr bílnum

22. Það síðasta sem þú verslaðir fyrir þig?

ég er alltaf að versla fyrir mig....var í dag að kaupa fullt af heilsuvörum, grænmeti og öðru góðu stöff........seinustu flíkur: keypti mér 2 kjóla 12. desember

23. Er eitthvað hangandi undir baksýnisspeglinum í bílnum?

nei en það er lykill í Hvalfjarðagöngin bak við hann

24. Hvað fékkstu þér í morgunmat?

hmmm jógúrt með jarðaberjum....kannski borðaði ég líka morgunkorn hjá mömmu og pabba.....ætli ég sé með alsheimer þegar ég man ekki hvað ég borðaði í morgunmat??????

25. Hver í kringum þig er með flestu húðflúrinn:

Siggi bró held ég

26. Hvaða þrjár hljómsveitir sást og heyrðir þú síðast í:

live????? Nick Cave með smá bandi, Trabant vá hvað ég hef verið léleg að fara á tónleika....og hvað ég er illa haldin af alzheimer því ég man ekki hverjir spiluðu á tónleikunum með trabant

27. Hvað sefur þú að jafnaði í marga klukkutíma á sólahring?

sko flókið mál....ég hef ekki sofið "eðlilega" síðan í nóvember þannig að ég man það ekki.....en mig minnir að það séu 6-7 tímar, núna sef ég sko 10-13 tíma á sólahring en mest allan desember svaf ég 3-5 tíma..

28. Hefur þú einhvern tímann verið bundin?

hahahahahahahaha nei en ég hef nokkra aðila grunaða um að vilja binda mig og jafnvel kefla á stundum.....hahahaha

29. Hvað hefðir þú frekar vilja vera gera þessa stundina?

ekki neitt....vildi samt óska þess að ég hefði viljað vera að búa um rúmið mitt....eða ganga frá fötunum mín....

30. Hvaða nafn kemur fyrir fremst í símaskránni þinni?

Agnar

31. Hvenær varst síðast vitni af slagsmálum?

Man það ekki en það voru stelpuslagsmál og aldrei þessu vant snérust þau um strákamál ungra stúlkna

32. Hvaða áfenga drykk drakkstu þú síðast?

bjór með Einsa bró

33. Finnst þér gott að láta toga í háríð þitt?

hver eftir því hver togar:oD

34. Nefndu þrjá staði sem þú myndir vilja ferðast til:

Usa, Danmark, Deutschland

35. Ertu góð á skautum?

Ég var það alls ekki þegar ég var 17 ára og efast um að ég hafi lagast síðan þá.

36. Nefndu eitthvað sem þér myndi langa í en væri flokkað undir óvenjulegt.

hmm ég er ekki viss um að þetta sé svoleiðis blogg.....hahahahahaha... mig langar í kirsuber - er það óvenjulegt....mig langar líka í heimatilbúna lifrapylsu - það er sennilega óvenjulegt....og svið mig langar sko í svið - er það nokkuð óvenjulegt?....svo langar mig líka að vinna í lottói - það getur alls ekki verið óvenjulegt

37. Hvað finnst þér um BRAD PITT?

Overrated að mestu en á sín hot móment

38. Nefndu þann vin sem þú átt mest sameiginlegt með...

Stundum Guðrún og stundum Þóra Magga

39. Hvaða litur er á táneglunum þínum?

enginn í augnablikinu...gæti verið grænn eftir smá ef ég nenni enn að búa um rúmið mitt þegar ég er búin að þessu

40. Við hvern talaðir þú síðast við í síma?

mömmu mína

41. Átt þú eitthvað með hauskúpu á?

ég bara held ekki....jú heyrðu ég á nokkur pör af sokkum með hauskúpum

42. Hefur þú ferðast mikið innanlands?

já það er spurningin???? hvað er mikið???? held það sé bara svona miðlungs en svo tala ég við sumt fólk og þá er það frekar mikið...

43. Hefur þú ferðast til Afríku?

nei

44. Nefndu þrjár manneskjur sem þú myndir treysta fyrir lífi þínu?

ég er paranojuð...annars held ég að öllum vinum mínum sé treystandi fyrir lífi mínu....annars væru þau ekki vinir heldur kunningjar

45. Síðasta mynd sem þú sást?

Mynd hmmm ég horfð á einhverja mynd annan í jólum, jólamynd um mann sem langaði til að sleppa jólunum....

46. Hvar varstu þú þegar þú fékkst fyrsta kossinn?

vá vitiði hvað það er langt síðan ég fékk fyrsta kossinn????? lít ég út fyrir að muna allt????? giska samt á að ég hafi verið á Lyngbrekkuballi....eða Fljótstungurétt....man það virkilega ekki....var það kannski á leiðinni heim úr Fljótstungurétt....já það var það....fyrsti kossinn og fyrsti sopinn af brennivíni allt í sömu ferð hahahahaha ég mundi það jeiiiiiiii

47. Síðasta spil sem þú spilaðir?

Ég og Guðrún spiluðum rumikub

48. Leður eða Latex?

leður

49. Hefur þú fengið glóðurauga?

50. Á hvaða videoleigu ferð þú helst á?

Fer helst ekki á vídeóleigu en ef ég fer þá er bara um eina að ræða: kósý

51. Hefur þú gengið í sokkabuxum?

já kannski einu sinni eða tvisvar....hahahahahaha

52. Þekkir þú einhvern sem er í fangelsi?

það held ég ekki...

53. Að lokum ...

njótið lífsins og öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir

þriðjudagur, desember 26, 2006

juleglæde og gaverne

jólin eru komin og allir búnir að borða yfir sig nokkrum sinnum....það er ljúft líf að vera í sumarbústað og slappa af....ég er mjög dugleg að vinna upp svefninn og hef tekið því mjög rólega og haft það mjög gott....



ætla heim á morgun og hlakka til að eiga nokkra daga þar í rólegheitum....svo þurfum við margrét að plana veislu.....fjóla komdu.....









powered by performancing firefox

föstudagur, desember 22, 2006

svefnsýki...

jólin nálgast eins og óð fluga og ég geri ekki mikið annað en að sofa....og horfa á dvd....skreyta laufabrauð....er ekki frá því að jólabarnið komi upp í mér hérna í skjólinu hjá mömmu og pabba....

það er gott að vera í sumarbústað á veturna og það er frábært þegar fólk vaknar loksins eftir margra vikna "blund"

miðvikudagur, desember 20, 2006

tíminn líður og jólin nálgast

það er farið að styttast allverulega í jólin.

Ég er búin að kaupa næstum allar jólagjafir og pakka þeim inn, 2 bíða í ísskápnum og ein bíður enn í búiðinni....toppaði meira að segja sjálfa mig og sendi út nokkur jólakort....

Ég er komin í jólafrí....dagurinn í gær var meira að segja í styttra lagi þar sem nemendurnir komust ekki í skólann sökum veðurs....

Á morgun er útskrift og vonandi verður veðrið skaplegt svo nemendurnir komist á staðinn


Í kvöld bauð ég Þórunni í kjúklingarétt og við lágum á meltunni fram eftir kvöldi....hún er að fara í menninguna á morgun ef henni tekst að brjótast í gegnum storminn....ég hef áhyggjur af því að hún ætli að borða óhollustu öll jólin en ég hlýt að geta snúið henni um áramótin þegar hún fær ósætan eftirrétt með matnum....hahaha það er ekki eins og hún hafi eigin vilja...öfunda hana pínulítið af reykjavíkurferðinni, sálarballinu og emelíuendurfundunum og svo auðvitað af því að hitta Fjóluna en er sjálf á leiðinni í sumarbústað og á eftir að hafa það gott með fullt af dvd og góðum félagsskap - og svo auðvitað maturinn hennar mömmu í nágrenninu!!!

njótið jólaundirbúningsins og munið að tapa ykkur ekki í stressinu því jólin koma hvort sem það er búið að þrífa eða ekki!!!!

Ps) mig langar hrikalega mikið í grillaða samloku...vantar bara brauð og ost - djöfulsins innkaupastjóri!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

laugardagur, desember 16, 2006

samstag

Mig vantar sárlega einbeitni...getur einhver aðstoðað mig????

Ég er búin að skila öllum einkunnum þannig að í raun er þessi önn búin...einkunnaafhending á mánudag og útskrift á miðvikudag

er að hugsa um að skella mér á ball í kvöld...og sjá hvort það dreifi ekki aðeins huganum að dansa og dufla:o)

Á morgun er starfsmannagleði og vissulega ætla ég að mæta þar...hress að vanda...

Fór í ræktina 4 sinnum í þessari viku og 4 sinnum í seinustu viku....fer alltaf á morgnanna, þægilegt að vakna á hlaupabrettinu!!



Loksins mjakar í rétta átt á sjúkrahúsinu en ég held áfram að hugsa jákvætt og kveikja á kertum og vona að þið gerið það líka



powered by performancing firefox

miðvikudagur, desember 13, 2006

here today gone tomorrow

er komin heim eftir frábæran tíma í reykjavíkinni....búin að kaupa næstum allar jólagjafir...þarf að pakka þeim inn...





keypti líka nokkur kerti;o) og fékk fleiri hjá mömmu svo nú get ég haldið áfram að hafa kveikt á kertum hér....og vona það besta...hversu mikið er hægt að leggja á fólk???





það var yndislegt að hitta Guðrúnu og Fídel aftur og vonandi verður ekki eins langt í að við hittumst næst....





skrifa meira seinna





powered by performancing firefox

sunnudagur, desember 10, 2006

søndag

það eru núna komnar þrjár nætur í röð þar sem ég hef náð eðlilegum svefni.....yndislegt

á morgun er seinasti kennsludagurinn...einkunnaskil 17 des...útskrift 20. des - önnin sem sagt að verða búin og það liggur fyrir hvað ég kenni eftir áramót...verð með svipað mikla vinnu og svipað marga nemendur....það hélt þó enginn að ég yrði bara í 100% vinnu eða hvað???

póstur sem ég fékk í dag hefur vakið mikla kátínu hjá okkur landsbyggðardrottningunum.....það þarf reyndar ekki mikið til að vekja kátínu hjá okkur....við sátum yfir subway og skemmtum okkur vel yfir smáborgurum og öðru skondnu fólki....við þurfum að fara að skrifa bókina Þóra

best að fara að pakka niður fyrir reykjavíkina

laugardagur, desember 09, 2006

laugardagur

hvað á það að þýða að það óhollasta sem er til á þessu heimili séu hnetur og rúsínur???? Hver sér eiginlega um innkaupin hér????



í dag hef ég tekið því rólega...farið í ræktina, eldað góðan mat, lagað aðeins til og auðvitað hef ég ráfað aðeins um netið;o)



á mánudaginn er ég að fara til reykjavíkur og hlakka mikið til...ætla að kaupa jólagjafir og annað slíkt....ætla að vera þar í nokkra daga og er Guðrún svo dásamleg að ætla að leyfa mér að vera hjá sér



er að hugsa um að gramsa í skápunum hér og athuga hvort ég finni eitthvað annað en graskersfræ.....hvar er snakkið, poppið og gosið - er að hugsa um að reka þann sem sér um innkaupin hér!!! ...nenni samt ekki út í sjoppu því það er rok úti...



ps)hneturnar eru ekki einu sinni ristaðar eða velt upp úr salti...djö hollusta!!!!





powered by performancing firefox

föstudagur, desember 08, 2006

Hamingja

búin að fá bílinn minn aftur úr viðgerð...meira að segja nýbónaðan

svaf í 8,5 tíma í nótt og vaknaði eldhress

það er að koma helgi

þriðjudagur, desember 05, 2006

Húrra

Fæ bílinn minn á morgun!!!!!!!!!!!





powered by performancing firefox

ertu ekki að grínast????

þetta er sennilega 11 nóttin í röð sem ég er vakandi eftir kl 1. Ég sofna ekki, ef ég leggst upp í rúm þá bylti ég mér og get ekki sofnað....hef reyndar ekki reynt jafn mikið til að sofna öll kvöld;o) en er samt að verða verulega þreytt á þessu...það kemur að því að ég get ekki vaknað á morgnanna lengur eða bara haldið mér vakandi yfir daginn...

....er enn með hnútinn í maganum sem ég hef fundið fyrir alla seinustu viku og í dag hertist hann aðeins....trúi því samt að þetta muni allt enda vel....það verður að gera það.....


jæja best að athuga hvort James Blunt geti svæft mig í nótt eins og svo oft áður

ps) fín helgi að baki..tala meira um hana á morgun eða einhvern tíman

laugardagur, desember 02, 2006

getur einhver svæft mig????

ok afslöppun, heimilisstörf og snilldarkvöldmatur - done!!!



ég er samt ekki alveg að standa mig í því að sofa - er samt að hugsa um að fara að reyna að dáleiða mig í svefn....





powered by performancing firefox

föstudagur, desember 01, 2006

ok þá

hef ekki alveg gefið mér tíma í blogg í þessari viku...búin að vera að gera verkefni fyrir HA og þess á milli hef ég verið andvaka....



ég verð mjög fegin eftir 2 vikur þegar skólinn er búinn....verður gaman að komast í jólafrí og fá frí frá hinu daglega lífi....við Einar munum hafa það gott í sumarbústað með vinkonum okkar frá New York....Charlotte, Samantha, Carrie og Miranda það verður stuð hjá okkur!!!!!!!!!!!!



um helgina stefni ég á algera afslöppun í bland við heimilisstörf og mikinn svefn ekkert rugl ekkert vesen og ekkert bull





powered by performancing firefox