fimmtudagur, desember 25, 2008

Gleðileg jól til ykkar allra

jólin hjá mér líða í ljúfu netleysi og kósýheitum...þyrfti samt að vinna einhvern tíma...á morgun!!!

fimmtudagur, desember 18, 2008

vinnan er að verða búin þennan mánuðinn....eða í raun ekki en sú vinna sem ég þarf að mæta í á réttum tíma á réttum stað er að verða búin. Á morgun er seinasti kennsludagur í MA og það má alveg búast við því að hann verði stuttur í annan endan......
Mér finnst skrýtið að kenna svona alveg fram að jólum og svo próf í janúar......vorönnin byrjar svo 28. janúar.

Einkunnir í háskólanum eru farnar að birtast....misgóðar en það er bara eins og það er.

Ég fer í Borgarfjörðinn á morgun...hef rekið mig á það hér í vetur að það er ekki sjálfsagt að vita hvar sýslumörkin milli Borgarfjarðar og Mýrasýslu voru....fyrir mig er það ósköp eðlilegt en ég hef lent í umræðum um það oftar en einu sinni og oftar en tvisvar hvaða dalur var í hvaða sýslu - en svo finnst fólk ósköp eðlilegt að maður vita allt um hverja þúfu hér í nágrenninu....hehehehe

Er mikið búin að velta fyrir mér framtíðinni svona almennt.....fékk fastráðningu á einum stað núna á dögunum.....yfirmaðurinn á þeim stað er að skipta um starfsstað svo það er aldrei að vita hvað þessi fastráðning þýðir....fer kannski mest eftir því hver tekur við þar

Mig langar í vinnu þar sem ég er ekki að vinna alla daga á ákveðnum tíma....langar í vaktavinnu eða kvöld og helgarvinnu og einbeita mér meira að skólanum.....ætla að gera það næsta vetur....er ráðin í fullt af vinnu fram á vor og reikna ekki með því að geta fengið námslán næsta haust....held þeir færu fram á að ég borgaði þeim ef ég sæki um!!!!

Jólaseríum skýtur upp með ógurlegum hraða hér og erfitt að sjá hvaða hverfi er mest skreytt en sé á fjölbýlishúsunum í síðuhverfi að það nenna ekki allir að skreyta eins - ég get alveg sagt ykkur að ég tapa í jólaskreytingarkeppninni því ég hef ekki skreytt neitt fremur en venjulega

nenni engu en ætla að halda áfram pakka niður svo ég komist af stað ekkert allt of seint á morgun.

...er einhver sem nennir að senda mér smá dropa af orku svo ég komist í gegnum morgundaginn og muni eftir öllu sem ég þarf að muna eftir?????!!!

þriðjudagur, desember 16, 2008

búin að klára próf og verkefni í háskólanum

búin að skila einkunnum í einum skóla

á eftir að kenna 3 daga í hinum skólanum



alltof lítill svefn seinustu 2-3 vikur en það stendur til bóta um jólin jei



er annars búin að kaupa jólagjafir og hef hugsað um að pakka þeim inn.....

mánudagur, desember 08, 2008

Ég ákvað það um daginn þegar ég var komin í vægt sjokk yfir verkefnalistanum mínum að ég ætlaði barasta að frysta hann og neita að taka við nýjum verkefnum.....gekk ágætlega í smá stund - alveg þangað til ég sá hvað það söfnuðust miklir vextir á hann!!! Núna hef ég affryst listann og vona að hann gengisfalli!!!!!! hehehehe nei ég veit alveg nákvæmlega hvað ég geri næstu 2 vikurnar - þið trúið því ekki hvað það verður gott að fara að sofa 19. des og vera komin í jólafrí!!!!

akkúrat núna er ég að berjast við að halda mér vakandi - var að semja ritgerð fram eftir nóttu...

það er samt svo gaman að vera ég!!