mánudagur, janúar 30, 2006

þreytt líf...sorry NÖLDUR

ég er að ég held farin að nálgast mörk þess ómögulega vinnulega séð og ég er hætt að hugsa...heilinn er kominn á autopilot og ég hugsa bara 10. feb 10. feb 10. feb.
Ég veit alveg að það hættir ekkert að vera mikið að gera þá allt í einu.....en þá verða allaveganna 2 aukaverkefni búin og koma ALDREI aftur.
Ég er allan tíman að gera eitthvað og meira að segja á úthlutuðum hvíldartíma er ég farin að browsa um netið og skoða hitt og þetta sem ég ætti kannski ekkert að vera að skoða. (já ég úthluta mér hvíldartíma alveg eins og vinnutíma og matartíma!)
Annars hef ég það fínt og ég sef eins og steinn allar nætur - þó sumar séu stuttar!!! Ég hef ekki enn tekið næturnar inn í vinnutímann en það kemur örugglega að því eins og fyrir áramót.
Ég held að næsta skref sé að skreppa á fund og segja:

HÆ ÉG HEITI VALGERÐUR OG ÉG ER VINNUALKI

Jæja nú er best að vera aðeins duglegur svo ég missi ekki af sjónvarpstímanum í kvöld (já líka skipulagður sjónvarpstími!!!!!;o/)

sunnudagur, janúar 29, 2006

Sunnudagur.....

Ég er að reyna að koma þessu bloggi í gang og er búin að finna út hvernig maður setur inn linka:o) Ég er samt mjög léleg í þessu html-dóti en kannski ég verði betri eftir smá tíma!!!
Ef einhver á svona idiotproof html-lista fyrir aula þá þigg ég að fá að kíkja á hann.

laugardagur, janúar 28, 2006

Best að reyna eitthvað nýtt

Ég er að hugsa um að reyna að blogga hér núna, hin síðan pirrar mig smávegis!!