fimmtudagur, desember 18, 2008

vinnan er að verða búin þennan mánuðinn....eða í raun ekki en sú vinna sem ég þarf að mæta í á réttum tíma á réttum stað er að verða búin. Á morgun er seinasti kennsludagur í MA og það má alveg búast við því að hann verði stuttur í annan endan......
Mér finnst skrýtið að kenna svona alveg fram að jólum og svo próf í janúar......vorönnin byrjar svo 28. janúar.

Einkunnir í háskólanum eru farnar að birtast....misgóðar en það er bara eins og það er.

Ég fer í Borgarfjörðinn á morgun...hef rekið mig á það hér í vetur að það er ekki sjálfsagt að vita hvar sýslumörkin milli Borgarfjarðar og Mýrasýslu voru....fyrir mig er það ósköp eðlilegt en ég hef lent í umræðum um það oftar en einu sinni og oftar en tvisvar hvaða dalur var í hvaða sýslu - en svo finnst fólk ósköp eðlilegt að maður vita allt um hverja þúfu hér í nágrenninu....hehehehe

Er mikið búin að velta fyrir mér framtíðinni svona almennt.....fékk fastráðningu á einum stað núna á dögunum.....yfirmaðurinn á þeim stað er að skipta um starfsstað svo það er aldrei að vita hvað þessi fastráðning þýðir....fer kannski mest eftir því hver tekur við þar

Mig langar í vinnu þar sem ég er ekki að vinna alla daga á ákveðnum tíma....langar í vaktavinnu eða kvöld og helgarvinnu og einbeita mér meira að skólanum.....ætla að gera það næsta vetur....er ráðin í fullt af vinnu fram á vor og reikna ekki með því að geta fengið námslán næsta haust....held þeir færu fram á að ég borgaði þeim ef ég sæki um!!!!

Jólaseríum skýtur upp með ógurlegum hraða hér og erfitt að sjá hvaða hverfi er mest skreytt en sé á fjölbýlishúsunum í síðuhverfi að það nenna ekki allir að skreyta eins - ég get alveg sagt ykkur að ég tapa í jólaskreytingarkeppninni því ég hef ekki skreytt neitt fremur en venjulega

nenni engu en ætla að halda áfram pakka niður svo ég komist af stað ekkert allt of seint á morgun.

...er einhver sem nennir að senda mér smá dropa af orku svo ég komist í gegnum morgundaginn og muni eftir öllu sem ég þarf að muna eftir?????!!!

1 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég skal senda þér fullan tank af orku. Komdu bara til mín næstu vetur og vertu ráðskona hjá mér.....þá geturu einbeitt þér að skólanum, því það er alltaf svo fínt og hreint heima hjá mér að þú myndir ekkert þurfa að gera....nema kannski að elda einu sinni og einu sinni. Hlakka til að sjá þig.
leikskólastelpan

19 desember, 2008 07:59  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim