laugardagur, desember 09, 2006

laugardagur

hvað á það að þýða að það óhollasta sem er til á þessu heimili séu hnetur og rúsínur???? Hver sér eiginlega um innkaupin hér????



í dag hef ég tekið því rólega...farið í ræktina, eldað góðan mat, lagað aðeins til og auðvitað hef ég ráfað aðeins um netið;o)



á mánudaginn er ég að fara til reykjavíkur og hlakka mikið til...ætla að kaupa jólagjafir og annað slíkt....ætla að vera þar í nokkra daga og er Guðrún svo dásamleg að ætla að leyfa mér að vera hjá sér



er að hugsa um að gramsa í skápunum hér og athuga hvort ég finni eitthvað annað en graskersfræ.....hvar er snakkið, poppið og gosið - er að hugsa um að reka þann sem sér um innkaupin hér!!! ...nenni samt ekki út í sjoppu því það er rok úti...



ps)hneturnar eru ekki einu sinni ristaðar eða velt upp úr salti...djö hollusta!!!!





powered by performancing firefox

1 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég er sko alveg til í að skipta um innkaupastjóra við þig, minn kaupir nóa kúlur, popp, snúða, ís osta og kex og fleira og fleira....
Sjáumst steinunn

10 desember, 2006 09:00  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim