laugardagur, febrúar 06, 2010

pirruð og kvartandi

ég er frekar pirruð og næstum einhent þar sem ég er með hrikalegustu sinaskeiðabólgu vestan dofrafjalla á hægri hendi..........fanfokkingtastisk

af hverju er ég ekki örvhent??????

ekki að það myndi breyta neinu því ég nota jú báðar hendur við að skrifa á tölvu og þessi helgi er búa til ný verkefni helgi og undirbúa skilaverkefni 2 í náminu helgi

ég þrjóskast þó við...ét verkjatöflur eins og smartís.....samt ekki því ég hef ekki borðað smartís í bráðum 5 ár!!!! ég er líka svo bráðheppin að eiga bólgueyðandi og verkjastillandi gel sem virkar ágætlega...verkirnir verða næstum bærilegir......ég nenni þessu svo innilega ekki

come on það er erfitt að fara í brjóstahaldara eða hneppa tölum þegar hægri er í hálfverkfalli

hver nennir að koma og vaska upp fyrir mig og leika hægri svo ég geti hvílt mína?????????

1 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Heyrðu ég á gifs handa þér á hægri.....
Annars er ótrúlegt hvað lærist, ég var orðin góð í hinum ýmsu athöfnum á vinstri einni saman hér um árið.... bæði gipsið og axlarliðurinn!!!!!! Heppin, kannski erum við skyldar
SE

09 febrúar, 2010 19:31  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim