miðvikudagur, apríl 01, 2009

Ég er búin að skila skattframtalinu...2 dögum fyrir seinasta frest....í fyrra gleymdi ég að ýta á senda þannig að ég skilaði því að ég held degi of seint!!!
Þetta var lífsreynsla(á vin í dk sem segir að lífsreynslur séu eitthvað sem yfirleitt eigi bara að upplifa einu sinni:D) verst að ég verð ekkert betur undirbúin næsta vetur held ég....sennilega mun viss starfsmaður ríkisskattstjóra blokka mig á msn frá byrjun febrúar fram í byrjun maí á næsta ári hehehe

Annars er alveg að koma páskafrí...bara eftir að fara yfir 20-30 verkefni og pakka og laga til....svo get ég brunað í frí

laga til gæti einhver spurt sig....hún er að fara í frí og þá lagar hún til - hún ætti að fara í frí oftar hahahahahahaha en þar sem ég lána íbúðina mína yfir páska og það vita ekki alveg allir að ég er svín;o) þá ætla ég að gera fínt hérna

í gær hengdi ég upp nokkrar myndir....átti að vera að annað hvort fara yfir verkefni eða gera verkefni eða hvoru tveggja

í fyrradag bjó ég til konfekt því ég átti að vera að fara yfir verkefni eða gera verkefni

á sunnudaginn þvoði ég þvott og braut saman af því að ég átti að vera að....... þarf ég eitthvað að klára þessa setningu????


Á sunnudaginn braut ég matardisk og í gær braut ég hylki utan af vanillustöngum......það eru ennþá glerbrot útum allt og ég er samt búin að ryksuga þrisvar......nennir einhver að segja mér af hverju ég er að brjóta diskana mína ég á bara 5 eftir núna:(

á föstudaginn er hygge á Hvanneyri og á laugardaginn er smáréttagleði á Neshaganum (það verða sko engir smá réttir!!!!!!)


og til að halda áfram með þemað frá því áður þá blogga ég í kvöld því ég ætti að vera að fara yfir verkefni eða gera verkefni........

2 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Þú ert dugleg, ég er bara komin í frí og nenni því ekki!!!
Góða ferð út og góða skemmtun

Steinunn

04 apríl, 2009 15:32  
Anonymous Nafnlaus sagði...

While I surf blog , i found a all new trick in http://pic-memory.blogspot.com/Vistor can comment and EMBED VIDEO YOUTUBE , IMAGE. Showed Immediately!
EX : View Source.
http://pic-memory.blogspot.com/2009/02/photos-women-latin-asian-pictu...(add photos and videos to Blogspot comments).
Written it very smart!
I wonder how they do it ? Anyone know about this , please tell me :D
(sr for my bad english ^_^)

email: ya76oo@ya76oo.com
thanks.

19 apríl, 2009 13:06  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim