fimmtudagur, febrúar 19, 2009

Hei þú bjáni....ég sit hérna í alvarlegri andnauð og frekar blá um varir því ég ætlaði að halda niðri í mér andanum þangað til þú og prinsipesan hringduð.......en nei ekkert heyrðist í símanum fyrr en litla barnið mitt hringdi til að segja mér hvað hún hefði borðað í kvöldmat - eða eitthvað svoleiðis

ég er reyndar búin að vera að fara yfir verkefni í allt kvöld - svona á milli þess sem ég borðaði yfir mig af kjötsúpu og gæddi mér á belgísku gæða konfekti

helgin nálgast óðfluga og ég bæti sífellt verkefnum á helgarvinnulistann - hvað er til ráða ef listinn er lengri en helgin??????

1 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég veit ég er bjáni...stór og mikill símabjáni. Þú færð langt símtal í kvöld........ég lofa, lofa, lofa. Er bara fúl yfir því að þú sért ekki búin að finna lausn á þú veist....að flytja til mín.....djöfsans ves
FÁbjáninn

20 febrúar, 2009 07:47  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim