miðvikudagur, júlí 02, 2008

fréttir dagsins

það er farið að vera verulega erfitt að pakka upp....það er mjög lítið geymslupláss í eldhúsinu hjá mér - meira að segja mun minna en á Grundargötunni!!!!

Það er ekkert mál að koma fyrir stærri hlutum en það er miklu meira mál að koma fyrir litlu hlutunum - geymslan bjargar miklu en hún er samt ekki 100 fermetra... hahahaha

Ég er búin að taka upp úr flestum kössum....2 eldhúskassar eftir vegna plássleysis og 2-3 kassar sem eru tengdir pennum hahahaha nei ég meina skrifstofudóti og svo 1 kassi með skóm...hef gengið berfætt síðan ég kom hingað!!!!!

Í dag fór ég og keypti helstu nauðsynjavörur...mold og potta fyrir sætu blómin mín!!! Keypti reyndar líka lítið sætt borð til að setja út á svalir með stólunum sem ég keypti í gær!!!!!

Í gær eyddi ég fullt fullt af peningum....ég borgaði skólagjöld, keypti flugmiða til dk og keypti fullt af nauðsynjavörum (hvar ætla ég svo að koma þeim fyrir?????) hahahahahahahahahaha

Í gær hengdi ég líka upp myndir....smá trix þegar ekki má negla í veggina!!!!

Nú sit ég hérna í dásamlegri kvöldsólinni sem ég hef saknað mikið seinustu 4 árin - mér er svo sama að hafa ekki sól á svalirnar fyrri part dags þegar ég hef seinniparts og kvöldsólina hér...útsýnið af svölunum er ekki neitt slor eins og sést hér fyrir neðan

2 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Helló. bara heppin. eg kann ekki að setja myndir a síðuna mina enþá svo eg get ekki sýnt ykkur húsið mitt herna i london. sakna þín svo langar svo að koma og vera hja þer!!! ehh ehh ehh ehh

03 júlí, 2008 10:11  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Mjög töff mín kæra, nú er bara að sjá hvort að maður komist til þess að njóta þess með þér :)

03 júlí, 2008 13:33  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim