þriðjudagur, maí 20, 2008

og vikurnar líða ein af annarri...í lok vikunnar er útskrift hér

Ég er komin með fullt af vinnu næsta vetur og er algerlega hætt að hafa fjármála áhyggjur...hef svo sem engar áhyggjur því mér finnst gott að hafa nóg að gera!!! hætti bara að sofa 9-11 tíma á nóttu ef mig vantar meiri tíma...hehehehe annars er ég grínlaust að sofa 9-11 tíma allar nætur núna og finnst það eiginlega of mikið.....er samt á fullu allar nætur því ég hef bæði verið í sauðburði þar sem ég tók á móti köflóttum lömbum og verið í hestaferð og svei mér þá ef ég var ekki komin aftur í rhs (reykholtsskóla) eina nóttina.

núna er ég að reyna að horfa á undankeppni eurovision - gengur ekki vel en ég reyni kannski aftur á fimmtudaginn.....

3 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

.....ekki gleyma innkaupaferðinni okkar í supermegastoremarkaðinn þar sem þú verslaðir inn í ruslapokavís ásamt dóttur þinni eða syni þínum...hahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahah.
Draumóða Maggan

21 maí, 2008 10:15  
Blogger Doppa sagði...

Hæ hæ - langt síðan ég hef kíkt hingað inn - vildi bara kvitta fyrir mig. Til hamingju með nýju vinnuna, ekki amalegt að vera orðinn kennari við MA!
Kveðja
Doppa

21 maí, 2008 15:34  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Innkaupaferðin var í þínum draumi svo ég varð ekki þreytt af henni en ég var að leita af farangrinum mínum á flugvelli í alla nótt og það var þreytandi....

Takk Doppa, spennandi að vera að flytja norður.

21 maí, 2008 19:20  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim