miðvikudagur, mars 05, 2008

Ég er komin heim eftir 5 daga útiveru...

föstudag fór ég til pabba og mömmu þar sem ég leiraði og spilaði og horfði á lion king


laugardag fór ég til borgarinnar og eyddi fullt af peningum og græddi fullt af fallegum fötum, ég fór í snilldar matarboð og skrapp aðeins út á lífið með fallegum konum

sunnudag var ég þreytt og fór snemma að sofa

mánudag fór ég með flugi á bíldudal - fórum í Birkimelsskóla, Patreksskóla, framhaldsdeildina og eftir snilldarkvöldmat Bíldudalsskóla

þriðjudag fórum við ógurlega snemma í Grunnskóla Tálknafjarðar, í mikilli snjókomu sem olli því að fluginu okkar var frestað....þess vegna skelltum við okkur í framhaldsdeildina þar sem ég fékk að vera konan í sjónvarpinu;o)
Ekkert flug á þriðjudegi og þar með dæmd önnur nótt í fínu íbúðinni á Bíldudal, ljúfur kvöldmatur og fór svo snemma að sofa

í dag miðvikudag fórum við útaf á leiðinni á flugvöllinn en komust að sjálfsögðu heil á húfi í flug og alla leið til borgarinnar, ég kom við hjá Ásdísi á leiðinni heim, fór í Bónus og kíkti á foreldrana, þegar ég loksins kom heim fann ég heiladauðan færast yfir mig og vildi óska þess að ég gæti farið að sofa - farðu að vinna Valgerður!!!!!

4 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Gaman að hitta þig um helgina mín kæra.

06 mars, 2008 05:15  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Takk fyrir komuna og hvítvínið. Það mun örugglega bætast töluvert í fatasafnið þitt....skáparnir eru fullir af góssi sem ég þarf að losna við til þess að geta tekið á móti nýjum vörum...hahahahahahahahahahahah.

Hlakka til að hitta þig næst....hvar verður annars næsta matarboð???????
Þóra Magga

06 mars, 2008 09:37  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Lambabógur hjá mér með öllu meðlæti í kringum páska???? - hérna er hvítvín ekki örugglega meðlæti?????
Ég verð sætari með hverri flík sem bætist í safni:oD reyndar erfitt þar sem ég er svo sæt....hahahaha
Held að mamma kíki í noanoa næst þegar hún er í kringlunni því henni fannst nýju fötin æðisleg!!!

Gaman að sjá þig líka kæra frænka!!

06 mars, 2008 10:07  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Mér líst mjög vel á páskalambaferð til Valgerðar. Hvítvín er sko algerlega viðurkennt meðlæti....alveg eins og grænmeti á pönnu.

Þú nefnir stað og stund og það verður mætt á svæðið.

Ég gæti jafnvel komið með eftirrétt sem við myndum muna eftir að borða.

Þóra Magga

06 mars, 2008 11:35  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim