sunnudagur, febrúar 17, 2008

er vorið að koma?????

Hér er búið að rigna og blása í nokkra daga og af þeim orsökum er alveg þó nokkuð mikið af snjónum farið=o) en trúið mér það er ennþá fullt af snjó í ruðningum og hrúgum hér og þar um bæinn og fjallgarðurinn minn er enn nokkuð stór en samt hættur að vera í mount everest stærð!!!

Á morgun fer ég í fangelsi - hef lítið gert af mér þannig að þetta verður ekki löng dvöl....fer svo á föstudag til ólafsvíkur þannig að bíllinn minn verður notaður í þessari viku!!!!

Allir útlandafararnir mínir eru komnir heim heilir á höldnu!!!!

Í dag er ég búin að vera að ganga frá þvotti og taka til í sokkaskúffunni minni....tók ca 30 pör af sokkum úr skúffunni en hún er samt ennþá full.....ætli ég eigi nóg af sokkum?????? í þessum skrifuðum orðum heyri ég að uppvaskið í eldhúsinu er með læti þannig að það er best ég sinni því!!!

4 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

ÚÚÚÚÚÚÚ bara 8 dagar í menninguna. Djöfull hlakka mig til að sjá á þér smettið.
maggan

21 febrúar, 2008 09:39  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Það er svo djamm þann 1. mars...Ekki satt frænka!

21 febrúar, 2008 15:51  
Anonymous Nafnlaus sagði...

1. mars gæti orðið viltur!!!!

Slapp úr fangelsi í annað skipti í vikunni í dag!!!!

21 febrúar, 2008 17:31  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Þú og Annþór í Vogunum eruð gott teymi. Þú þarft samt ekki að fela þig inn í skápum þegar þau ert sloppin.

Maggan

22 febrúar, 2008 09:28  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim