laugardagur, janúar 26, 2008

helgarlífið

Ég er snilldarkokkur - svei mér þá
í kvöld eldaði ég lambagrillsneiðar og grænmeti með grískri dressingu og það var fantagott!!
Kjötið var af vestfirskum kindum sem hljóta að borða fullt af indælis þara og hollu grasi því það er gott!!!
Ég hef oft búið til dressingu úr sýrðum rjóma......hef einhvern veginn ekki látið mér detta í hug að nota neitt annað en sýrðan rjóma....í kvöld lenti ég samt í veseni því sýrði rjóminn var grænn og það er ekki mjög náttúrulegur litur á svoleiðis vöru!!!! hvað gera menn þegar enginn sýrður rjómi er til.....jú þá notar maður AB mjólkina sem til er í ísskápnum í staðinn....virkar algerlega frábærlega og hér sit ég södd og sæl!!!

Stofan mín er skemmtileg eftir breytingar og allt í einu miklu stærri en hún var......það eina sem er að núna er hel$%$ snjórinn sem virðist vera til nóg af......en það er nú samt gaman að búa loksins ekki þar sem versta veðrið er - fín tilbreyting=o)

3 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Já ég nota AB mjólk mikið í sósur, finnst það miklu betra. verður léttari. Alltaf gaman að elda og borða góðan mat.
Heyrumst

27 janúar, 2008 11:06  
Anonymous Nafnlaus sagði...

hæj. váh eg a eftir að tínast þegar eg kem næst i heimsókn! :O heh þetta er það skemmtilega við að eiga íbúð maður getur breytt henni eins og manni sínist :) er enþá að leita a fullu :( afhverju er allt svona dýrt herna ehhehhehh.. en þetta hítur að fara koma ! ef ekki þa er það húsbíll hehe ;)

29 janúar, 2008 22:47  
Blogger Syneta sagði...

Til hamingju með breytingarnar ... en hvurt ætlarðu að flytja?:)

01 febrúar, 2008 00:28  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim