miðvikudagur, janúar 09, 2008

Á einhver...

smá þolinmæði handa mér????

ég er búin að komast að því að ég týndi þolinmæðinni einhversstaðar í jólafríinu og mér gengur illa að finna hana aftur!!!

er ekki viss um að ég sé á réttri hillu í lífinu...efi nýja ársins er kominn á fullt og ég er ekki ánægð með margt um þessar mundir....ætli maður geti flokkað niðurbrot sem þunglyndi og farið í dagsbirtulampa og orðið...ja alla veganna blindur!!!! Ég fæ hausverk af dagsbirtulömpunum sem eru hérna í skólanum þannig að vonandi er ég ekki með skammdegisþunglyndi;o) ég er reyndar alveg með á nokkuð hreinu hvað er að....mig langar að sofa meira!!! hahahahahaha í kvöld ætla ég að fara snemma að sofa og ekki horfa á næturhrafnana á skjá einum!!!

Ég er búin að vera rosalega dugleg að elda á hverjum degi og mér finnst það gaman....vildi að ég gæti verið að dunda mér í eldhúsinu allan daginn - ætti kannski að fá mér vinnu sem matráður einhversstaðar!!!


Powered by ScribeFire.

3 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæhæ ég á sko nóg af þolinmæði handa þér. MUndu bara eins og þú sagðir, sofa meira:-)
Annars er ég með hnút í maganum, fimleikaprófið á morgun- hrædd um að detta úr liðnum:-( og FALLA.
Vona að þú farir snemma að sofa.
Heyrumst

09 janúar, 2008 11:53  
Blogger Syneta sagði...

Hurðu ... við gætum tekið höndum saman? Ég get verið þolinmæði þín (mín þolinmæði nær til tunglsins) og þú getur verið matráðurinn minn:)

... you like? :)

09 janúar, 2008 22:30  
Anonymous Nafnlaus sagði...

I like!!!!

09 janúar, 2008 23:00  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim