miðvikudagur, nóvember 14, 2007

grundarfjörður - hellissandur - reykjavík - egilsstaðir

Vikan líður á ofur hraða....allt í einu eru öllu skipulagi breytt og ég er á leiðinni til Egilsstaða á morgun....örskotsferð og ég kem aftur á föstudaginn....ég fer auðvitað ekki ein heldur hef með mér útvalda fylgisveina og eðal yngismeyju....ég hlakka til að heimsækja Menntaskólann á Egilsstöðum og hitta skemmtilega vini.

Um helgina stendur ýmiskonar menning til boða bæði leiksýning og dansiball....og svo auðvitað vinna vinna vinna....ég er algerlega að gefast upp á vinnunni...nei það er reyndar ekki rétt....ég er bara að verða þreytt á að vera alltaf á seinasta snúningi með allt og þurfa alltaf að berjast við að halda höfði yfir vatni!!! Ég er líka hrikalega þreytt á kennurum sem eru óskipulagðir, bera fyrir sig kjánalegum afsökunum, svara ekki pósti og skila ekki yfirförnum verkefnum!!!! Ég held það væri búið að reka mig ef ég hagaði mér svona í kennslunni minni hér!!!!!!


jæja ætli það sé ekki best að fara að sofa svo ég geti vaknað klukkan 6 í fyrramálið því ég þarf að taka smá rúnt á hellissand áður en ég fer til reykjavíkur á morgun

1 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Góða ferð. Vonandi ertu örlítið þolinmóðari en frændi þinn á ferðalaginu.
Kveðja

15 nóvember, 2007 14:50  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim