miðvikudagur, október 24, 2007

haustfrí haustfrí haustfrí haustfrí haustfrí haustfrí haustfrí haustfrí

Ég er semsagt komin í haustfrí.....

Ég setti mér það markmið að ég ætlaði að vera í þunglyndi allt fríið....löng og skemmtileg röksemdafærsla bak við þetta en hún er ekki birtingarhæf á netinu því ég er í þannig stöðu að suma hluti get ég ekki leyft mér að segja......djókkkkkkkkkkkkkkkkkkkk

Ég semsagt ákvað það um daginn að ég ætlaði að vera þunglynd allt haustfríið mitt....áðan þegar ég var að tala við Guðrúnu gerði ég mér grein fyrir því að ég væri afskaplega illa undirbúin fyrir þunglyndis daga....ekkert snakk til, ekkert óhollt að borða til, enginn bjór eða hvítvín í ísskápnum heldur bara spirolina safi....sem er eitur fyrir suma.....bara ekki mig!!!

En þar sem undirbúningurinn hefur sem sagt klikkað eitthvað hjá mér ætla ég í kvöld að rífa mig niður yfir því hversu léleg ég sé að undirbúa þunglyndi og á sama tíma ætla ég að finna fötin sem ég verð í daga og nætur næstu daga...þetta ætti að duga til að rífa mig aðeins niður svo ég kaupi örugglega bara ógeðsmat í búðinni á morgun!!!!

Áður en ég fer að sofa ætla ég svo að horfa á Bridget Jones og ætti það að tryggja það að ég sé tilbúin fyrir næstu daga...all by myself!!!....ætti sennilega að skella í mig auka skammti af lýsi og c vítamíni núna til að hafa heilsu í þunglyndisfríið mitt!!!!

4 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Vá ertu alveg að tapa þér...
Á ég að senda þér límmiða, þeir lyfta manni upp, allavega Einari Má. Hann elskar að fá límmiða í verðlaun fyrir góða hegðun. Sem er mjög gott fyrir mig get látið hann gera hinar ýmsu kúnstir:-)
Vona allaveg að það sé grenjandi rigning og rok hjá þér (ekta þunglyndisveður) Bið að heilsa í bili.

25 október, 2007 09:15  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Skelltu þér suður í fríinu, taka smá sveiflu í bænum, bæði ég og Maggan (já og Lover Loverson) erum að fara út á lífið á laugkvöld...getur svo verið þunglynd eftir fríið yfir hve sturlaðar við erum hahaha.

26 október, 2007 01:27  
Anonymous Nafnlaus sagði...

hmm ef bíllinn minn væri ekki kominn á verkstæði í enn eitt skiptið.....

26 október, 2007 09:43  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Góð ákvörðun hjá þér að leggjast í þunglyndi!!!!! mér finnst samt alveg óþarfi að þú þurfir að smita bílinn af sama lyndi. Njóttu haustfrísins út í ystu æsar, vertu löt, latari og lötust. Mundi senda þér matarbakka úr délúx eldhúsinu mínu ef ég nennti að útbúa hann. En ég reikna nú samt með að ég hafi nennu til að hringja í þig.....

26 október, 2007 19:39  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim