fimmtudagur, apríl 19, 2007

Gleðilegt sumar!!!

Þá er sumarið komið...eða hvað????
það er frekar kalt hér en þetta hvíta ljóta heldur sig í fjöllunum og Kirkjufellið er ekki grátt þannig að það lítur ágætlega út fyrir vor í augnabliki...lyktin er að vísu ekki orðin alveg rétt en fuglarnir sem stunduðu mökunardans í garðinum mínum í gær hljóta að gefa til kynna að veturinn sé að verða búinn.
Eins og ég sagði seinast þá er ýmislegt að gerast hjá mér og ég get sagt frá því að ég er að fara til Bandaríkjanna 12. maí þannig að það verða engin eurovision/kosningapartý hjá mér í ár....
Annað verður látið í ljós seinna...

2 Ummæli:

Blogger Van De Kamp sagði...

Gleðilegt sumar frænka... Vetur og sumar frusu saman... á víst að tákna að sumarið verði alveg GASALEGA gott.. vonum að það sé rétt og að þetta hvíta í fjöllunum sé á leið norður og niður.. Komið alveg nóg af því

19 apríl, 2007 23:18  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Gleðilegt sumar frænka. Hvað ertu að fara að gera í BNA?

20 apríl, 2007 17:25  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim