sunnudagur, október 15, 2006

loksins blogg....


....ég er búin að vera meira og minna netlaus síðan á miðvikudaginn og ég hef eiginlega ekkert saknað þess....ætti samt að fá verðlaun því það er langt síðan ég hef verið offline í svona langan tíma:o)

er að hugsa um koma með smá ferðasögu...

á leiðinni til danmerkur eignaðist ég kærasta...hann slefaði yfir mér í fleiri klukkutíma og daðraði alveg frá því að ég sá hann fyrst og þangað til ég stakk af í köben...nýi kærastinn heitir Siggi og er ósköp mikið krútt...

ég byrjaði á því að fara til Odense þar sem ég slapp í H&M í ca klst svona rétt til að ath hvort ég hefði gleymt því hvernig ætti að versla þar;o)

ég gisti á hóteli í odense fyrstu nóttina og hitti annemette(kynntist henni þegar ég var í dk 95-96) í hádeginu á fimmtudag....við versluðum aðeins áður en við fórum heim til hennar í ejby

á fimmtudagsmorgun fórum við til randers til kristine(kynntist henni líka þegar ég var í dk 95-96) við byrjuðum á því að fá okkur að borða og svo skelltum við okkur í að versla.....um kvöldið buðu annemette og kristina mér í afmæliskvöldmat

á laugardagsmorgun eftir morgunmat skelltum við okkur í randers regnskov þar sem maður getur séð alls konar dýr....líka þessi sem ég ætla ekki að skrifa um því að þóra les þetta pottþétt....

ég og annemette fórum svo aftur til ejby og slöppuðum af um kvöldið

í dag fór ég svo til kaupmannahafnar þar sem mér tókst að kaupa fullt af dönskum dvd myndum áður en ég skellti mér í bíó.....

í nótt gisti ég á sama hóteli og ég gisti á þegar ég var með sigga og einari hér 2004.....þetta hótel er rétt hjá aðallestarstöðinni og þetta er örugglega ekki snyrtilegasta hverfi kaupmannahafnar...

....þetta er samt yndislegt hótel og morgunmaturinn var mjög góður fyrir 2 árum og ég hlakka til að prufa hann í fyrramálið....ég er eiginlega svöng en ég er ekki alveg viss um að það sé sniðugt að þvælast um ein á istedgade seint um kvöld....kannski er ég bara taugaveikluð en mér fannst óþægilegt að labba ein heim úr bíóinu áðan....

ég var ekki svona stressuð þegar ég var hérna með strákunum en það er ekki alveg það sama að vera einn....samt fannst mér það ekkert mál 96 þegar ég var í kaupmannahöfn ein seinast en sennilega er það aldurinn sem breytir manni aðeins.....heimurinn er líka orðinn meira brútal seinustu 10 árin....

á morgun ætla ég að gera eina tilraun í viðbót til að versla áður en ég skelli mér á flugvöllinn....hlakka mikið til að koma heim en veit samt sem áður að það er mjög mikil vinna sem bíður mín en svona er lífið.....

bitfarið sem tyson...aka...bitbrjálæðingurinn...aka...landsbyggðardrottningin veitti mér seinustu helgi er horfið....ég á eftir að rota hana einhvern tíma;o) var ansi nálægt því seinasta vetur þegar hún beit mig í eyrað en nartið seinustu helgi var bara fyndið;o)


fyrir þá sem ekki eru með það á hreinu þá átti ég afmæli í gær laugardag!!!!!!


steinunn ertu viss um að þú viljir að ég kaupi sokkabuxur handa drengnum?? hélt að þú hefðir haft áhyggjur af því að væri að reyna að breyta honum í stelpu seinast:o)

5 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Takk fyrir að nefna ekki þú veist dýrin....en ég veit samt um hvað þú ert að tala og á bara eftir að dreyma svona viðbjóð í nótt.
Þú átt aldrei eftir að getað rotað mig því ég bít frá mér. Hlakka til að sjá þig :)

15 október, 2006 23:32  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Til hamingju með afmælið sæta og hafðu það gott í Köben þar til þú kemur heim og þarft að demba þér í vinnubrjálæðið... Ég er einmitt á leið til Kóngsins Köbenhavn á fimmtudaginn og get ekki beðið eftir að komast í HM og röllta á Strikinu ;)

16 október, 2006 21:51  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Til hamingju með afmælið frænka á laugardaginn!

17 október, 2006 00:25  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Til hamingju með afmælið á laugardaginn! Betra seint en aldrei...

17 október, 2006 08:21  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Til hamingju með afmæli kella mín, sendi þér nú sms en það komst ekki til skila minns veit ekki afhverju. En vildi allavega láta þig vita að ég var ekki búin að gleyma þér...

Þinn postuli

17 október, 2006 09:47  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim