miðvikudagur, ágúst 30, 2006

reality check

maður byggist kannski við að einhver sem eyðir nánast öllum vakandi stundum með annan fótinn í netheimi hafi tíma til að blogga aðeins oftar...en nei það er ekki rétt

kennslan er komin á fullt....nfsn er komið af stað...

námið fer af stað á föstudag...er sem sagt að fara norður á fimmtudag eftir vinnu og verð þar um helgina

ég er að kenna mikið fram í október og þá kenni ég aðeins minna - er að kenna 26 klst á viku (16 klst er 100% vinna) en í byrjun október losna ég við 2 klst á viku og ég verð að viðurkenna að það kætir mig....sérstaklega af því að þetta er fyrsti tími á þriðjudögum og föstudögum þannig að ég fæ að lúra ögn lengur þá daga seinni hluta annar.

...búin að vera ástrík hjúkka í nokkra daga þar sem þóran mín er búin að veiða enn eina pestina...hjúkkuhæfileikar mínir felast reyndar bara í því að færa henni ab-drykki og súkkulaði og svo að láta hana hlægja aðeins...virðist samt virka því henni líður mun betur...

veit ekki hvað ég á að skrifa meira þannig við heyrumst seinna

1 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Þú ert stórgóð hjúkka þar sem ég er frekar leiðinlegur sjúklingur.
Takk fyrir allt hjúkkan mín......þarf eiginlega að fá lánaðan slopp og hlustunarpípu fyrir þig.

30 ágúst, 2006 12:48  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim