miðvikudagur, maí 03, 2006

Örg, þreytt og pirruð....

ég er að verða þreytt....vinnuálag annarinnar hefur verið frekar mikið og ég er ósköp fegin að þetta er að verða búið í bili..

..ég er farin að haga mér eins og smákrakki við sjálfa mig og það liggur við að ég gefist upp á mér..

....í morgun var ég td að taka til föt til að nota í ræktinni seinni partinn og ég ákvað það að ég ætlaði sko ekki í sturtu í skólanum því þá yrði mér svo kalt og ég ætlaði sko heldur ekki í sturtu heima hjá mér því það væri líka kalt.....ég ákvað að hætta að pakka í töskuna því ég nennti ekki að reyna að tjónka við sjálfa mig nývaknaða þannig að ég fer bara heim í hádeginu og pakka handklæði og svona svo ég geti farið í sturtu þegar ég er búin í ræktinn;o)

...ég er semsagt örg, þreytt og pirruð og hlakka mikið til að fara í húsmæðraorlof til Reykjavíkur um helgina...vonandi verð ég aðeins minna pirruð þá og næ að hlaða aðeins batteríin fyrir seinustu 2-3 vikurnar

í gærkvöldi bauðst mér ný kona og viðhald og ég er mikið að spá í hvort það verði ekki of mikið með 2 konur, 1 mann og 1 viðhald

2 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Bara í burtu með þessi aðskotadýr....ég á bara að vera eina konan í lífi þínu......og hættu svo að haga þér eins og smákrakki.

P.S húsmæðraorlofið verður snilld....fínt að komast aðeins í burtu frá börnum og mönnum ;)

03 maí, 2006 11:37  
Anonymous Nafnlaus sagði...

endilega mundu eftir að 8 er strax eftir helgi. Þú verður að skila á réttum tíma, helst fyrr því móður þína vantar einhverja yndislegustu dóttur sína, sem bæ th way stefnir að pungaprófi í þroskaþjálfun, til að lesa yfir þegar hún hefur drrrrrulllllll til að klára sín verkefni.lof jú og stið þig hvað sem þú ákveður að eiga marga maka!!!

03 maí, 2006 22:53  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim