fimmtudagur, mars 16, 2006

veikindadagur

já nú sit ég heima með snýtipappírinn áfastan nefinu til að hindra það að ég sé með hor niður á hné - smekkleg Valla!!!!

Ég er búin að dorma yfir sjónvarpinu í allan morgun og ekkert gert að viti.....ég er fegin að vera komin með sófa til að geta legið fyrir framan sjónvarpið.....kannski ég fari að setja veikindadag inn á dagatalið reglulega;o)

Á morgun er ég að fara til augnlæknis í rvk og ég ætla rétt að vona að hún geti lagað augnvesenið hjá mér því ég er búin að fá nóg!!

Ég er ekki viss hversu lengi ég verð í rvk en ég ætla allaveganna að kaupa mér ný gleraugu og skoða fatabúðirnar því fötin mín eru öll að verða of stór

Jæja er orðin þreytt best að kúra aðeins

1 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Þú ert ekkert smá dugleg að blogga, maður hefur bara ekki undan að lesa hjá þér;)
En láttu þér batna í auganu og kvefinu;)

16 mars, 2006 15:54  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim